Forritunarmál.
Hér verður farið yfir helstu forritunarmál sem notuð eru í dag og hvað einkennir hvert og eitt.
TIOBE vísitalan
Fyrirtækið TIOBE heldur úti vísitölu (index) sem mælir vinsældir forritunarmála á 30 daga fresti. Fyrirtækið vinnur við gæðaeftirlit á forritum og nafnið byggir á setningunni "The Importans Of Being Earnest". Samkvæmt vinsældarlista þeirra er Java og C vinsælustu forritunarmálin í dag. Þeirra skilgreining á forritunarmáli er að það þurfi að standast Turing kröfuna (Turing complete), sem er að það sé hægt að keyra það sem eina forritið á tölvu og framkalla einhver viðbrögð. Af þeim sökum eru forritunarmál eins og HTML og XML ekki á þessum lista þar sem þau eru fyrst og fremst notuð til að lista upp gögn eða texta en ekki keyra tölvur.