Verkefni 5.  Forritun og þjarkar á starfsbraut. 

Verkefnalýsing:

Markmið verkefnisins er að búa til áfanga á starfsbraut þar sem nemendur fá að kynnast einfaldri forritun og einnig smíði og stjórnun á vélmennum.

Áfangar á starfsbraut þurfa að vera sveigjanlegir þannig að viðmiðið verður alltaf einstaklingsbundin kennsla miðað við getu hvers og eins.  
Einnig þarf að gera ráð fyrir því að sumir geti margfalt meira en aðrir og því þarf innihald áfangans að vera sveigjanleg. 

Verkefnið er hluti af námi í áfanganum USF1510, eða Upplýsingatækni og starfsþróun til framtíðar

Tenging við námsmarkmið USF1510-V18

Kemur inná nánast alla þætti áfangans, forritun,  Maker Spacer, tækniþróun,  vefsíðugerð (þessi verkefnalýsing) og jafnvel gagnagrunna, þar sem þessi vefsíða er byggð með innbyggðum MySQL gagnagrunni.  

Kemur sérstaklega inná fjögur hæfnimarkmið:

  1. geta gert grein fyrir og rökrætt margvísleg áhrif fyrirsjáanlegra tækninýjunga á þróun skólastarfs,
    jafnt í umræðum sem fræðilegum skrifum
  2. geta nýtt færni í grunnatriðum forritunar í starfi á sviði náms og kennslu,
  3. geta átt frumkvæði að og leitt áætlanir þar sem upplýsingatækni er nýtt á fjölbreytilegan og skapandi hátt í þágu náms,
  4. hafa þróað með sér hæfni og sjálfstæð vinnubrögð til að afla sér frekari þekkingar og leikni á þeim sviðum sem viðfangsefni námskeiðsins taka til.

Önnur markmið sem verkefnið kemur inná:

  • geta sett saman vélmenni og forritað.
  • geta þróað einstaklingsbundar kennsluaðferðir til að koma þeirri þekkingu frá sér.

Almenn námsmarkmið áfangans fyrir nemendur á starfsbraut:

Markmið náms og kennslu á starfsbrautum eru

  • að stuðla að alhliða þroska nemandans
  • að veita nemendum einstaklingsmiðuð námstækifæri
  • að auka sjálfstraust nemandans, sjálfstæði og samskiptahæfni til daglegra athafna
  • að veita nemendum reynslu, þekkingu og færni sem nýtist þeim í daglegu lífi

Sértækari  hæfnimarkmið nemenda áfangans.

Að loknu námi skal nemandi hafa hæfni til að ...

  • þekkja og nýta styrkleika sína
  • vera þátttakandi á vinnumarkaði
  • leggja mat á árangur sinn og möguleika
  • mynda sér sjálfstæðar skoðanir og tjá þær
  • efla eigin sjálfsmynd og sjálfstraust og trú á eigin færin
  • forrita einfaldar skipanir í smátölvum og tiltækum forritum. 
  • setja saman vélmenni og forrita til að framkvæma einfalar skipanir.