Þjarkar

Það eru til nokkrar útgáfur af þjörkum sem notaðar hafa verið í kennslu í skólum.  Æ fleiri fyrirtæki eru farin að bjóða upp á sambærilegan búnað  og Lego fyrirtækið.    Hér verður aðeins stiklað á stóru en það er hægt að segja að þróun þessa kennslubúnaðar hafi hafist af alvöru með tilkomu Mindstorms frá Lego  árið 1998.  Fyrsta framleiðslan kallaðist MindStorms Robotics Invention System  ris1eða RIS1.0.   Síðan komu nokkar uppfærslur, RIS1.5 og RIS2.0 en grunnurinn var svipaður og LEGO Mindstorms NXTlitlar breytingar þar til árið 2006 sem Lego kom fram með MindStorm NXT  sem var mikil tæknileg uppfærsla með betri stjórn á mótorum og einnig bluetooth tengingu, nýjum skynjurum,  öflugum örgjörva og LABView forritunarumhverfi.   Lego kom einnig flótlega fram með aðrar vörur sem urðu vinsælar eins og WeDo árið 2008 sem ætlað fyrir yngri nemendur og núna er WeDo 2.0 enn í boði og vinsæl vara.   Með WeDo kom einnig þægileg blokkaforritun sem gerði stjórnun og forritun að enn auðveldari leik fyrir börn. wedo2wedoblocks

Nýjasta afurð Lego er MindStorms EV3 sem kemur í nokkrum útgáfum. Lego hefur t.d. brugðist við gagnrýni á kynjahalla í þessum afurðum með því að bjóða uppá samsetningarmöguleika sem eiga að höfða meira til  stúlkna en áður en þessi tæki hafa hingað beinst frekar að strákum og jafnvel breikkað kynjahallann í tækninámi. 

ev3 

Önnur fyrirtæki:

Hér verður aldrei hægt að segja frá öllum þeim fyrirtækjum sem eru að framleiða svipaða vöru í dag en aðeins stiklað á örfáum.  

Fishertechnik er rótgróið þýskt fyrirtæki í leiktækjabransanum og hafa boðið uppá öfluga þjarka síðan 2014. fishertechnik

LittleBits er bandarískt fyrirtæki með aðsetur í NewYork.  Það var stofnað af Ayah Bdeir árið 2011 og er ört vaxandi fyrirtæki í framleiðsu á örtölvum, þjarkapökkum og samsetningarpökkum til ýmislegra nota fyrir börn og unglinga.

littlebits