Breadcrumbs

 
 

C++

C++ er eitt vinsælasta leikjahönnunarforritið í dag, sérstaklega vegna þess hve það er létt í keyrslu og úrvinnslu.   Það er talið frekar erfitt við fyrstu kynni, t.d. í samanburði við Python, en mikilvægt fyrir forritara að kunna það.   C++ kom fyrst fram árið 1983 og var hannað af Bjarne Stroustrup.   "Forritunarmálið C++ er mun nær vélbúnaðinum í tölvunni en bæði Java eða Python, sem þýðir að hægt er að ná miklum hraða í forritum skrifuðum í C++, en á móti verður sjálfur kóðinn þá oft mun lengri en til dæmis sambærilegur kóði í Python"(Eyjólfur Ingi Ásgeirsson, 2016).

Hér er dæmi um það hvernig forritið skrifar:  Halló heimur.

#include <iostream>
using namespace std;

int main() 
{
    cout << "Hello, World!";
    return 0;
}